Gefst upp á Blogger
Þetta kerfi er allt of þungt og seint í vöfum svo ég gefst upp á því og vísa í annað blogg sem ég er með undir fullu nafni en ég er mun virkari í skrifum mínum þar.
Rúnaristur Galdrameistaranns.
Þetta kerfi er allt of þungt og seint í vöfum svo ég gefst upp á því og vísa í annað blogg sem ég er með undir fullu nafni en ég er mun virkari í skrifum mínum þar.
Hef þjáðst hinum hræðilega sjúkdómi bloggleti undanfarið. Einnig búinn að loka spjallinu á Kaffi Blút for gúdd.

Ég hef verið að renna yfir netdagbækur á þekktum bloggsíðum undanfarið og það kemur mér alltaf jafn mikið á óvart hvað fólk er tilbúið að skrifa um sína persónulegu hagi á netinu þar sem allir geta lesið um það.
Nú fer víst að líða að sumarlokun hjá Gestapó og er það víst mörgum gremjuefni þar sem sumir hafa einstaklega mikla tjáningarþörf hvort heldur í bundnu máli eða rituðu sjálfum sér og öðrum til ama eða skemmtunnar.
Jæja.
Ég held ég láti það vera að raka mig sköllóttan aftur.
Nú er ég búinn að losa mig við höfuðhár mitt og skegg og líður samkvæmt því mun betur en áður.
Ég er að farast úr fokking leiðindum. Ég nenni ekki að gera neitt og vildi helst vera heima hjá mér sofandi næstu fjóra sólarhringana svo ég gæti vakað næstu þrjá og þambað Blút í ótakmörkuðu magni einhversstaðar í góðum félagsskap.
Óska þessum átta sem kíkja hér við af og til gleðilegs sumars.