Nú er það svefnleysi
Það er ekki anskotalaust að reyna að tóra eða halda glórunni í lagi, (þeirri litlu sem eftir er), enda þjáist ég af svefnleysi þessa dagana.
Annað en um daginn þegar ég var veikur og svaf í 14 tíma á sólarhring í nokkra daga.
Annars er ég ótrúlega pennalatur um þessar mundir, nenni hreinlega ekki tjá mig um nokkurn hlut, enda allt hvort sem er rifið úr samhengi og maður rakkaður niður fyrir að þora að tjá sínar skoðannir opinberlega.
Nenni ekki að nöldra yfir þessu, en pennaletin er samt sem áður staðreynd.

5 nöldur:
*reynir að finna eitthvað út úr þessu til að rífa úr samhengi, gefst upp*
Svefnleysi er ömurlegt, ég hef fengið stóra skammta af því af og til á síðustu árum. Það getur nærri því gert mann vitstola gangi það of langt.
Ég skal senda þér eitthvað af syfjunni sem er að hrjá mig í kvöld Galdri minn.
Takk fyrir það Blóðugt, en Skabbi, þú verður að játa að þú ert bara hugmyndasnauður í augnablikinu. Þú nærð fljótlega að finna eitthvað sem þú getur röflað yfir.
Ég er ekkert hermikráka!!
Get bara ekki sofið fyrir fokking draugunum!
*Ullar*
Víst ertu að herma
Ullar til baka
Sendu inn athugasemd
Tengill á færslu:
Create a Link
<< Heim