þriðjudagur, apríl 25, 2006

Djöfull leiðist mér

Ég er að farast úr fokking leiðindum. Ég nenni ekki að gera neitt og vildi helst vera heima hjá mér sofandi næstu fjóra sólarhringana svo ég gæti vakað næstu þrjá og þambað Blút í ótakmörkuðu magni einhversstaðar í góðum félagsskap.

Hef samt tekið eftir því að aðdáendum mínum á þessari síðu hefur fækkað um 50% af einhverjum dularfullum ástæðum og kann flóttamönnunum litlar þakkir.

Af öðru er þó helst að frétta, að ég er gjörsamlega hættur að botna nokkuð í því sem íslenskir stjórnmálamenn þursa yfir okkur óbreytta borgarana, því annað hvort eru þeir að ljúga öllu sem þeir láta frá sér eða þeir hafa ekki snefil af metnaði í störfum sínum.

Nýjasta kjaftæðið kemur frá fjármálaráðuneytinu sem spáir hellings hagvexti næsta árið og næstu ár, en getur ekki á sama tíma hækkað laun lægst launuðu ríkisstarfsmanna sinna sem skrimta á rúmum hundraðþúsundkalli á mánuði fyrir að annast það fólk sem byggði undir rassinn á þessu ráðherrarusli sem í hroka sínum og sambandsleysi við almúgann í landinu heldur að það sé þjóðhagslega hagkvæmt að halda úti miljarða sendiráðum í svörtustu Afríku og gulustu Asíu.
Þetta segir mér að það þarf að losan sem fyrst við þetta drasl út af alþingi og koma inn fólki sem er ekki eingöngu að hugsa um eigin gump og sinna nánustu.

HEIMTUM BYLTINGU STRAX!!!

0 nöldur:

Sendu inn athugasemd

Tengill á færslu:

Create a Link

<< Heim