þetta er allt saman drasl
Ég er búinn að fá upp í kok af tölvum þessa dagana.
Er að setja upp nýjan webserver á gentoo og stillingarnar í apache, mysql og fleira eru gjörsamlega að gera mig brjálaðan.
Því meira sem maður les sér til, því minna skilur maður í þessu.
Ef maður er heppinn, þá vaknar maður dauður einhvern morguninn eftir að hafa kyrkt sjálfan sig í svefni.

4 nöldur:
Ohh já - apache og mysql getur verið dauði, sérstaklega saman. Ertu kannski að setja upp php líka? Ef svo er þá vorkenni ég þér hrikalega ...
apache, mysql, php, phpmyadmin, DNS, og fleira.
Ýmis greiningartól og öryggistól.
Búinn að stússa í þessu í 2 vikur, enda gentoo ekki það auðveldasta í heimi bara í uppsetningu fyrir utan svo allt hitt og configið á því að auki.
Þetta hefst allt með hægðini (eða hægðunum) bara ekki reyna setja of mikið upp í einu.
Nú er ég svosem enginn sérfræðingur, en búinn að keyra Linux þjón í c.a. 4 ár.
Á honum er núna apache, mysql, php, phpmyadmin, DNS
Síðan má ekki gleyma póstinum. Postfix, MailScanner spamasassin, ClamAv og Squirrelmail (og fl.). Erfiðast hefur mér gengið að fá allt þetta póstdót til að hanga saman, en ég fékk mjög trausta hjálp við að koma Postfix upp.
Best hefur mér reynst að taka þetta í stuttum skrefum og helst að klára bara eina þjónustu í einu, því með því að vera configa of mikið á sama tíma gerir of erfitt fyrir að finna út hvað veldur því að allt sé farið fjandans til.
Jú það er rétt hjá þér að vera ekki að gera of mikið í einu í þessu dóti því það grillar í manni heilann.
Annars er vefurinn kominn upp og keyrir fínt.
Næsta stig er að setja upp fleiri vefi til að sjá hvort virtual host er ekki að virka 100% og ef það gengur, þá er komin tími á að færa allt gumsið yfir á nýja þjóninn þegar búið er að stilla hann í samræmi við þann gamla.
Annars bendi ég ég á vefinn http://mark2002.net þar sem var sett upp umræða um þessi mál og það er verið að reyna að fá þangað fólk með reynzlu og þekkingu til að deila speki sinni þannig að sem flestir geti notið þess að nota hraðvirk og góð stýrikerfi sem eru laus við alla óværu og kosta þar auki ekki neitt.
Sendu inn athugasemd
Tengill á færslu:
Create a Link
<< Heim