Gleðilega páska
Um leið og ég óska þeim átta sem reka af og til hér inn nefið gleðilegra páska, þá vil ég beina þeim varnaðarorðum til þeirra að éta nú í hófi um hátíðarnar svo eigi fái þeir magakveisu og drullu. Einnig vona ég að þeir stundi ekki óhóflega drykkju á Blút og ákavíti, en afleiðingar þess kunna að valda mörgum hausverk sem það stundar.
(Undirritaður hefur fengið að súpa af því seyðið)
Svo eru það fermingarveizlurnar. Þar flýtur allt í sætindum. Kökur og gosdrykkir sem geta með óhóflegri neyzlu safnast fyrir undir húðinni í formi fitu og spiks. Farið því varlega í neyzlu þess konar góðgætis.
Sjáumst svo hress og kát á Baggalút eins og venjulega, en ég mun gera mitt bezta til hrista upp í einhverjum þráðum þar af og til af mínum einskæra skepnu og kvikindisskap.
Lifið heil.

4 nöldur:
Iss, málshátturinn minn þetta árið er "Enginn verður af einum bita feitur."
Ég ætla að fá mér marga bita af páskaegginu, kannski verð ég feit af því en hverjum er ekki sama?
Gleðilega páska Galdri!
Gleðilega páska Furða mín.
Nei, það verður seint einhver feitur af einum bita og ég held að þú sért bara fín eins og þú ert.
Farðu bara vel með þig.
Þetta voru hinir ágætustu páskar.
Eitt súkkulaðiegg númer 4 mætti örlögum sínum en lítið annað var étið.
Kjöt er ekki vinur minn þessa dagana og áfengi er ekki haft um hönd í minni fjölskyldu, svo Nornin var edrú alla páskana :-)
Heilsan eftir því... grænmeti og edrúmennska... það mætti halda að ég væri farin að lifa heilsusamlegu lífi!
Kræstur.
Svona líferni gæti gengið af galdramanni dauðum.
Hér var feitt kjet, áfengi og allur pakkinn til staðar og ég er við góða heilsu.
Sendu inn athugasemd
Tengill á færslu:
Create a Link
<< Heim