Hugleiðing - Kafli 1
Það er stundum sem maður hugsar út í það hvað fólk er misjafnt frá náttúrunnar hendi og hvernig það nær að höndla lífið sem liggur framundan hjá því.
Ég horfði á þátt á Stöð 2 í gærkvöld þar sem telft er fram annars vegar drengjum sem eru með það háa greindarvísitölu, að þeir eru í hópi 2% greindustu einstaklinga í Bandaríkjunum og svo hins vegar fallegum stúlkum sem stíga ekki í vitið, enda þurfa þær ekki á greind að halda, þar sem fegurðin fleytir þeim í gegnum lífið og þær þurfa ósköp lítið að hafa fyrir hlutunum, aðeins brosa og vera fallegar.
Það var náttúrulega parað saman, strákur og stelpa og þurftu þau að deila herbergi saman og kenna hvort öðru það sem þau kunnu.
Strákarnir þurfa að læra ýmislegt um félagsleg samskipti meðalgreinds fólks, félagslíf, tónlist og margt í þeim dúr en dömurnar að læra landafræði og vísindi og fleira sem þær féllu á í skóla.
Það sem mér fannst athyglisvert við þennan fyrsta þátt, var að sjá hvað það sköpuðust fjlótt góð tengsl milli stúlknana og drengjana og hvað þessir gjörólíku einstaklingar náðu þó vel saman á stuttum tíma.
Það verður áhugavert að fylgjast með framhaldinu og hvort eitthvað af þessum pörum nær saman til frambúðar.
Fylgjumst með...............

0 nöldur:
Sendu inn athugasemd
Tengill á færslu:
Create a Link
<< Heim